Sjómannadagurinn

Dagsetning

01. Júní. 2025

Vers dagsins

„Síðan reis Jesús upp, hastaði á vindinn og vatnið og varð stillilogn.“ (Matt 8.26b)

Kollekta


Almáttugi faðir, eilífi Guð. Þú vakir í föðurkærleik yfir öllu því sem þú hefur skapað, náð þín er ný á hverjum degi. Ger okkur minnug á gjafir þínar, að við séum fús til að færa þér líf okkar að þakkarfórn. Lát okkur lúta vilja þínum og treysta forsjón þinni. Fyrir son þinn Jesú Krist sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda. Eða Við þökkum þér, algóði faðir, að þú hefur gefið okkur auðug fiskimið. Við biðjum þig að hjálpa okkur að gleyma ekki hve dýrmæt sú gjöf er, og hversu lífsafkoma okkar og velferð er háð vinnu þeirra sem sækja sjó. Við minnumst sjómannanna og biðjum þig að fylgja þeim á ferðum þeirra, vaka yfir þeim í hættum og erfiðleikum og bjarga úr öllum háska, og leiða þá heila heim til hafnar. Blessa þá sem hlutu hina votu gröf, og hugga ástvini þeirra alla, fyrir Jesú Krist, Drottin vorn. Amen.

Lexía: Slm 107.1-2, 20-31


Þakkið Drottni því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu. Svo skulu hinir endurleystu Drottins segja, þeir er hann hefur leyst úr nauðum sendi orð sitt og læknaði þá og bjargaði þeim frá gröfinni. Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans og dásemdarverk hans við mannanna börn, færa honum þakkarfórnir og segja frá verkum hans með fögnuði. Þeir sem fóru um hafið á skipum og ráku verslun á hinum miklu höfum sáu verk Drottins og dásemdarverk hans á djúpinu. Því að hann bauð og þá kom stormviðri sem hóf upp öldur hafsins. Þeir hófust til himins, hnigu í djúpið, og þeim féllst hugur í háskanum. Þeir skjögruðu og reikuðu eins og drukkinn maður og kunnátta þeirra kom að engu haldi. Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni og hann bjargaði þeim úr þrengingum þeirra. Hann breytti storminum í blíðan blæ og öldur hafsins lægði. Þeir glöddust þegar þær kyrrðust og hann leiddi þá til þeirrar hafnar sem þeir þráðu. Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans og dásemdarverk hans við mannanna börn,

Pistill: Post 27.13-15, 20-25


Nú rann á hægur sunnanvindur. Hugðust þeir þá hafa ráð þetta í hendi sér, léttu akkerum og sigldu fram með Krít nærri landi. En áður en langt leið skall á af landi ofan fárviðri, hinn illræmdi landnyrðingur. Skipið hrakti og varð því ekki beitt upp í vindinn. Slógum við undan og létum reka.Dögum saman sá hvorki til sólar né stjarna og ekkert lát varð á ofviðrinu. Tók þá að þrjóta öll von um að við kæmumst af. Nú höfðu menn lengi einskis matar neytt. Þá stóð Páll upp meðal þeirra og mælti: „Góðir menn, þið hefðuð átt að hlíta mínu ráði og leggja ekki út frá Krít. Þá hefðuð þið komist hjá hrakningum þessum og tjóni. En nú hvet ég ykkur til að vera vonglaðir því enginn ykkar mun lífi týna en skipið mun farast. Því að á þessari nóttu stóð hjá mér engill þess Guðs sem ég heyri til og þjóna og mælti: Óttast þú eigi, Páll, fyrir keisarann átt þú að koma. Guð hefur gefið þér alla þá sem þér eru samskipa. Verið því vonglaðir, góðir menn. Ég treysti Guði, að svo muni fara sem við mig hefur verið mælt.

Guðspjall: Matt 8.23-27


Nú fór Jesús í bátinn og lærisveinar hans fylgdu honum. Þá gerði svo mikið veður á vatninu að bylgjurnar gengu yfir bátinn. En Jesús svaf. Þeir fara til, vekja hann og segja: „Drottinn, bjarga okkur, við förumst.“ Hann sagði við þá: „Hví eruð þið hræddir, þið trúlitlir?“ Síðan reis hann upp, hastaði á vindinn og vatnið og varð stillilogn. Mennirnir undruðust og sögðu: „Hvílíkur maður er þetta? Jafnvel vindar og vatn hlýða honum.“

Sálmur: 776. Sjá, bát á bárum hrakti


Trúarlífið - Sjómannasálmar

hymn notes
1 Sjá, bát á bárum hrakti, um borð svaf Jesús þar. Það ógn og angist vakti að allt í hættu var. Þá bregður Jesús blundi og býður: Læg þig, haf. Hvert ólag óðar hrundi og ágætt veður gaf. 2 Guðs undur enn þá gerast og öll á réttri tíð. Um höfin hjálp mun berast er harðna veður stríð. Ei kvarta þarf né kveina sé Kristur með um borð. Oft sjómenn sjá og reyna hans sígilt máttarorð. 3 Ef hann má fleyi fylgja oss farnast vel mun þá þótt rishá brotni bylgja og brimi lífs um sjá. Í gegnum hafdyn hranna vér heyrum glöggt hans raust. Hann, lífsins ljósið sanna, vor leiðir fley í naust. 4 Er syrtir lífs á leiðum oss löngum brestur mátt. Á voðans vegi breiðum oss verður ráðafátt. Allt sýnist vera að sökkva og sólar hverfa lönd en yfir djúpið dökkva þá Drottinn réttir hönd. 5 Er héðan hinsta sinni skal halda fleyi' á dröfn, þá vef oss verndan þinni og varðveit oss í höfn. Ef þú við stýri stendur oss stefnan fatast ei. Þá brosa bjartar strendur í blíðum anganþey.


T Elias Blix, 1891 – Valdemar V. Snævarr, 1983 – Vb. 1991
Jesus stiller stormen / Ein båt i stormen duva
L Leif Ofstad 1956, 1982 – Vb. 1991
Ein båt i stormen duva

Eldra númer 597
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Matt. 8.23–27