Sunnudagur í föstuinngang (Estomihi) Æskulýsdagurinn - Krossferillinn / Vegur kærleikans
Grænn.
Vers dagsins,,Sjá vér förum upp til Jerúsalem, og mun allt það koma fram við mannssoninn , sem skrifað er hjá spamönnunum.” (Lúk 18.31)
Kollekta
Við biðjum þig, Drottinn: Heyr í mildi þinni bænir okkar. Leys okkur úr viðjum syndanna og varðveit okkur gegn öllu illu. Fyrir son þinn Jesú Krist frelsara okkar og Drottin sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Lexía: Jes 50.4-11
Drottinn Guð hefur gefið mér lærisveinatungu svo að ég lærði að styrkja hinn þreytta með orðum. Á hverjum morgni vekur hann eyra mitt svo að ég hlusti eins og lærisveinn. Drottinn Guð opnaði eyra mitt og ég streittist ekki á móti, færðist ekki undan. Ég bauð bak mitt þeim sem börðu mig og vanga mína þeim sem reyttu skegg mitt, huldi ekki andlit mitt fyrir háðung og hrákum. En Drottinn Guð hjálpar mér, þess vegna verð ég ekki niðurlægður. Því gerði ég andlit mitt hart sem tinnu og veit að ég verð ekki til skammar. Nærri er sá er sýknar mig, hver getur deilt við mig? Við skulum báðir ganga fram. Hver ákærir mig? Komi hann til mín. Drottinn, Guð minn, hjálpar mér, hver getur sakfellt mig? Sjá, þeir detta allir sundur eins og klæði, mölur étur þá upp. Hver er sá yðar á meðal sem óttast Drottin og hlýðir á boðskap þjóns hans? Sá sem gengur í myrkri og enga skímu sér, hann treysti á nafn Drottins og reiði sig á Guð sinn. En þér, sem kveikið eld og vopnist logandi örvum, gangið sjálfir inn í eigið bál og eldinn sem þér kveiktuð með örvunum. Úr minni hendi kemur þetta yfir yður, þér munuð liggja í kvölum.
Pistill: 1Kor 1.18-25
Því að orð krossins er heimska þeim er stefna í glötun en okkur sem hólpin verðum er það kraftur Guðs. Ritað er: Ég mun eyða speki spekinganna og hyggindi hyggindamannanna mun ég að engu gera. Hvar er vitringur? Hvar fræðimaður, orðkappi þessa heims? Er ekki það sem heimurinn telur speki heimska í augum Guðs? Enda þótt speki Guðs sé í heiminum gátu mennirnir ekki þekkt Guð með sinni speki. Þess vegna ákvað Guð að boða það sem er heimska í augum manna og frelsa þá sem trúa. Gyðingar heimta tákn og Grikkir leita að speki en við prédikum Krist krossfestan, Gyðingum hneyksli og heiðingjum heimsku en okkur sem Guð hefur kallað, bæði Gyðingum og Grikkjum, Krist, kraft Guðs og speki Guðs. Því að heimska Guðs er mönnum vitrari og veikleiki Guðs mönnum sterkari.
Guðspjall: Lúk 18.31-34
Jesús tók þá tólf til sín og sagði við þá: „Nú förum við upp til Jerúsalem og mun allt það koma fram sem spámennirnir hafa skrifað um Mannssoninn. Hann verður framseldur heiðingjum. Þeir munu hæða hann, misþyrma honum og hrækja á hann. Þeir munu húðstrýkja hann og lífláta en á þriðja degi mun hann upp rísa.“ En þeir skildu ekkert af þessu, orð þessi voru þeim hulin og þeir skynjuðu ekki það sem sagt var.