8. sunnudagur eftir þrenningarhátíð - Ávextir andans
Grænn.
Vers dagsins„Hegðið ykkur því eins og börn ljóssins. – Því að ávöxtur ljóssins er einskær góðvild, réttlæti og sannleikur.“ (Ef 5.8b-9)
Kollekta
Drottinn Guð, við biðjum þig: Gef okkur af mildi þinni þann anda, að við hugsum ávallt það sem er rétt og breytum eftir því, svo að við, sem getum ekki án þín verið, megum lifa samkvæmt þínum vilja. Fyrir son þinn Drottin Jesú Krist sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Lexía: Jer 23.16-22
Svo segir Drottinn hersveitanna: Hlustið ekki á orð spámannanna. Þeir flytja yður boðskap en þeir blekkja yður, þeir flytja uppspunnar sýnir og ekki af vörum Drottins. Þeir segja sífellt við þá sem fyrirlíta orð Drottins: „Þér hljótið heill.“ Og við hvern sem fylgir þverúð eigin hugar segja þeir: „Engin ógæfa kemur yfir yður.“ En hver hefur staðið í ráði Drottins, séð hann og heyrt orð hans? Hver hefur hlýtt á orð hans og boðað það? Sjá, stormur Drottins brýst fram, hvirfilbylur steypist yfir höfuð hinna óguðlegu. Reiði Drottins slotar ekki fyrr en hann hefur framkvæmt og fullkomnað fyrirætlanir hjarta síns. Síðar meir munuð þér skilja það. Ég sendi ekki þessa spámenn, samt hlaupa þeir, ég talaði ekki til þeirra, samt spá þeir. Hefðu þeir verið í ráði mínu, þá hefðu þeir boðað þjóð minni orð mín og snúið henni frá villu síns vegar og vondri breytni.
Pistill: Róm 8.12-17
Þannig erum við, systkin, í skuld, ekki við eigin hyggju að við skyldum lúta henni því að ef þið gerið það munuð þið deyja. En ef þið látið anda Guðs deyða gjörðir sjálfshyggjunnar munuð þið lifa. Allir sem leiðast af anda Guðs eru Guðs börn. Þið hafið ekki fengið anda sem hneppir í þrældóm og leiðir aftur til hræðslu. Þið hafið fengið þann anda sem gerir mann að barni Guðs. Í þeim anda áköllum við: „Abba, faðir.“ Sjálfur andinn vitnar með anda okkar að við erum Guðs börn. En ef við erum börn erum við líka erfingjar og það erfingjar Guðs en samarfar Krists því að við líðum með honum til þess að við verðum einnig vegsamleg með honum.
Guðspjall: Matt 7.15-23
Varist falsspámenn. Þeir koma til yðar í sauðaklæðum en innra eru þeir gráðugir vargar. Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá. Hvort lesa menn vínber af þyrnum eða fíkjur af þistlum? Þannig ber sérhvert gott tré góða ávöxtu en slæmt tré vonda. Gott tré getur ekki borið vonda ávöxtu, ekki heldur slæmt tré góða ávöxtu. Hvert það tré, sem ber ekki góðan ávöxt, verður upp höggvið og því í eld kastað. Af ávöxtum þeirra skuluð þér því þekkja þá. Ekki mun hver sá sem segir við mig: Drottinn, Drottinn, ganga inn í himnaríki heldur sá einn er gerir vilja föður míns sem er á himnum. Margir munu segja við mig á þeim degi: Drottinn, Drottinn, höfum vér ekki í þínu nafni flutt orð Guðs, rekið út illa anda og gert mörg kraftaverk? Þá mun ég votta þetta: Aldrei þekkti ég yður. Farið frá mér, illgjörðamenn.
Sálmur: 185. Ó, Herra Guð, lát hjá oss mætast
Kirkjuár - Hvítasunna til aðventu