Sunnudagur milli nýárs og þrettánda
Í vernd Guðs / Guðs hús
Hvítur.
Vers dagsins,,Hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika og vér sáum dýrð hans, dýrð sem sonurinn eini á frá föðurnum.“ (Jóh 1.14b)
Kollekta
Eilífi Guð og faðir gæskunnar. Allt frá fyrstu bernsku lofaði sonurinn þig. Við biðjum:Lát okkur á öllum vegum þessa nýja árs vaxa í þekkingunni og kærleikanum með syni þínum Jesú Kristi bróður okkar og Drottni sem með þér og heilögum anda lifir og ríkir um eilífð
Lexía: Slm 42.2-3
Eins og hindin þráir vatnslindir þráir sál mín þig, ó Guð. Sál mína þyrstir eftir Guði, hinum lifanda Guði, hvenær mun ég fá að koma og sjá auglit Guðs?
Pistill: Róm 12.1-5
Því brýni ég ykkur, systkin,[ að þið vegna miskunnar Guðs bjóðið fram sjálf ykkur að lifandi, heilagri, Guði þóknanlegri fórn. Það er sönn guðsdýrkun af ykkar hendi. Fylgið ekki háttsemi þessa heims. Látið heldur umbreytast með hinu nýja hugarfari og lærið svo að skilja hver sé vilji Guðs, hið góða, fagra og fullkomna. Fyrir þá náð sem mér er gefin segi ég ykkur öllum: Enginn hugsi hærra um sjálfan sig en hugsa ber heldur í réttu hófi, og hver og einn haldi sér við þann mæli trúar sem Guð hefur úthlutað honum. Við höfum á einum líkama marga limi en limirnir hafa ekki allir sama starfa. Eins erum við, þótt mörg séum, einn líkami í Kristi en hvert um sig annars limir.
Guðspjall: Lúk 2.41-52
Foreldrar Jesú ferðuðust ár hvert til Jerúsalem á páskahátíðinni. Þegar hann var tólf ára fóru þau upp þangað eins og þau voru vön og tóku Jesú með sér. Þau voru þar út hátíðisdagana. En þegar þau sneru heimleiðis varð sveinninn Jesús eftir í Jerúsalem og vissu foreldrar hans það eigi. Þau hugðu að hann væri með samferðafólkinu og fóru eina dagleið og leituðu hans meðal frænda og kunningja. En þau fundu hann ekki og sneru þá aftur til Jerúsalem og leituðu hans. Eftir þrjá daga fundu þau hann í helgidóminum. Þar sat hann mitt á meðal lærifeðranna, hlýddi á þá og spurði þá. En alla, sem heyrðu til hans, furðaði stórum á skilningi hans og andsvörum. Og er þau sáu hann þar brá þeim mjög og móðir hans sagði við hann: „Barn, hví gerðir þú okkur þetta? Við faðir þinn höfum leitað þín harmþrungin.“ Og hann sagði við þau: „Hvers vegna voruð þið að leita að mér? Vissuð þið ekki að mér ber að vera í húsi föður míns?“ En þau skildu ekki það er hann talaði við þau. Og Jesús fór heim með þeim og kom til Nasaret og var þeim hlýðinn. En móðir hans geymdi allt þetta í hjarta sér. Og Jesús þroskaðist að visku og vexti og náð hjá Guði og mönnum.
Sálmur: 61. Ó, hve dýrðleg er að sjá
Kirkjuár - Aðventa og jól