Mikjálsmessa og allra engla

Dagsetning

29. September. 2025

Litur

Hvítur.

Vers dagsins

Engill Drottins setur vörð kringum þá sem óttast hann og frelsar þá. Sálm.34.8

Kollekta


Drottinn Guð. Á undursamlegan hátt tekur þú engla og menn í þína þjónustu til þess að fullkomna verk þitt. Við biðjum þig, sýn mátt þinn í lífi okkar svo að við megum jafnt á góðum sem vondum tímum njóta aðstoðar engla þinna. Fyrir son þinn Jesú Krist sem með þér og heilögum anda lifir og ríkir frá eilífð til eilífðar. Amen.

Lexía: Sálm 103.17-22


En miskunn Drottins við þá er óttast hann varir frá eilífð til eilífðar og réttlæti hans nær til barnabarnanna, þeirra er varðveita sáttmála hans og muna að breyta eftir boðum hans. Drottinn hefur reist hásæti sitt á himnum og konungdómur hans drottnar yfir alheimi. Lofið Drottin, þér englar hans, þér voldugu hetjur er framkvæmið boð hans, er þér heyrið hljóminn af orði hans. Lofið Drottin, allar hersveitir hans, þjónar hans er framkvæmið vilja hans. Lofið Drottin, öll verk hans, á hverjum stað í ríki hans. Lofa þú Drottin, sála mín.

Pistill: Opb. 12.7 -12


Þá hófst stríð á himni: Mikael og englar hans fóru að berjast við drekann. Drekinn og englar hans börðust á móti en fengu eigi staðist og héldust heldur ekki lengur við á himni. Og drekanum mikla var varpað niður, hinum gamla höggormi sem heitir djöfull og Satan og afvegaleiðir alla heimsbyggðina, honum var varpað niður á jörðina og englum hans var varpað niður með honum. Og ég heyrði rödd mikla á himni segja: Nú er komið hjálpræðið og mátturinn og ríki Guðs vors og veldi hans Smurða. Því að þeim sem stóð frammi fyrir Guði dag og nótt og ákærði þau sem trúa hefur verið steypt niður. Og þau hafa sigrað hann fyrir blóð lambsins og fyrir orð vitnisburðar síns og eigi var þeim lífið svo kært að þeim ægði dauði. Fagnið því, himnar og þér sem í þeim búið. Vei sé jörðunni og hafinu því að djöfullinn er stiginn niður til yðar í miklum móð því að hann veit að hann hefur nauman tíma.

Guðspjall: Lúk 10. 17-20


Nú komu þeir sjötíu og tveir[ aftur með fögnuði og sögðu: „Drottinn, jafnvel illir andar hlýða okkur þegar við tölum í þínu nafni.“ En Jesús mælti við þá: „Ég sá Satan hrapa af himni sem eldingu. Ég hef gefið yður vald að stíga á höggorma og sporðdreka og yfir öllu óvinarins veldi. Alls ekkert mun gera yður mein. Gleðjist samt ekki af því að illu andarnir hlýða yður, gleðjist öllu heldur af hinu að nöfn yðar eru skráð í himnunum.“

Sálmur: 473. Englar hæstir, andar stærstir


Trúarlífið - Þakkargjörð fyrir gjafir Guðs

hymn notes
1 Englar hæstir, andar stærstir, allir lofi Drottins nafn. Allt sem andar, allt sem lifir, uppi, niðri, himnum yfir dýrki, lofi Drottins nafn. 2 Himinn fagur, hver einn dagur, hver ein nótt með stjörnusafn, stormar, þrumur, hvað sem hræðir, hvað sem vekur, örvar, glæðir lofi Herrans heilagt nafn. 3 Æðstum Drottni aldrei þrotni eilíft lof og þakkargjörð. Syngið feður, syngið mæður, syngið niðjar, menn og bræður. Heiðri Drottin hæð og jörð.


T John S. Blackie 1840 – Matthías Jochumsson – Vb. 1924
Angels holy, high and lowly
L Þorkell Sigurbjörnsson 1973 – Vb. 1976

Eldra númer 25
Eldra númer útskýring T+L