Sálmabók

98. Þín trú er mikil

Kirkjuár - Fasta

hymn notes
1 „Þín trú er mikil,“ mælti hann sem meinin þyngstu bæta kann, „því skal sú hjálpin hlotnast þér sem hjartans ósk þín kærust er.“ Um aldir streymir náð æ ný frá náðarorði dýru því að hugga sálir hörmum í. 2 Hið sama jafnan orð hans er, ef öflga trú í brjósti sér og hjarta manns svo auðmjúkt að sér enga læging heldur það að tína minnstu mola þá er miskunn hans það lætur fá til blessunar hans borði frá. 3 Af brauði lífs í heimi hér frá himni gnóttir öðlumst vér er sjúkum létta sálum neyð og syndir lækna' og bægja deyð. Ef trúarhönd þeim tekur mót vér tímans stöndumst öldurót og beitt ei hræðumst banaspjót. 4 Vor góði Jesús óskar að vér allir höndlað fáum það sem allra gæða' er æðst og best og allra heillir styður mest. Hann býður sjálfan sig, það brauð er sálna bætir hungursnauð. Það lífsbrauð hjörtu lífgar dauð.


T Nikolaj F.S. Grundtvig 1853 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
Kvindelil, din Tro er stor
L Hohenfurth um 1450 – Horn 1544 – Sb. 1589
In natali Domini / Da Christus geboren var / Singen wir aus Herzensgrund

Biblíutilvísun Matt. 15.21–28

Uppáhalds sálmar

Under Construction