Sálmabók
Sálmabókarvefur
Samhliða útgáfu nýrrar sálmabókar hefur tæknihópur sálmabókarnefndar, sviðsstjóri upplýsingatæknisviðs þjónustumiðstöðvar kirkjunnar og veflausnir Advania unnið að hönnun og smíði sálmabókargagnagrunns á þjónustuvef kirkjunnar. Vefsíðan salmabok.is sækir upplýsingar í sálmabókargagnagrunninn og er þetta fyrsta útgáfan af vefsíðunni. Margar hugmyndir bíða þess að fá framgang og birtast á Sálmabókarvefnum í framtíðinni. Allar ábendingar tengdar salmabok.is má senda á salmabok@kirkjan.is. Sálmabókin er til sölu á vef Kirkjuhússins.
Skýringar
Heimildir
Vulpius 1609 (og sambærilegar heimildir) Eitt nafn/staðarheiti og ártal í heimildum merkir útgefið handrit eða bók, ártalið er útgáfuárið. Melchior Vulpius 1609 (og sambærilegar heimildir) Eiginnafn og kenninafn ásamt ártali í heimildum merkir höfund texta eða lags. Ef engin komma er á eftir nafni höfundar og á undan ártali er talið að lag eða texti sé samið það ár sem getið er. Ef komma er höfð á eftir nafni höfundar merkir ártalið elstu útgáfu sem vitað er um. Dæmi: Sigvaldi Kaldalóns 1926 [lagið er samið árið 1926] Sigvaldi Kaldalóns, 1944 [lagið er fyrst útgefið árið 1944]
Orgelpípa
Ef orgelpípumerki er við sálm merkir það að hljómsetning sálmsins er byggð á raddsetningu hans. Með Sálmabók íslensku kirkjunnar 2022 er Ný sálmasöngsbók gefin út rafrænt þar sem finna má radd- og hljómsetningar fyrir hvern sálm í bókinni.
Yfirskrift og heiti
Yfirskrift sálms er fyrsta lína fyrsta erindis (nema í nr. 346–348 og í lessálmum). Heiti sálms kemur fram neðanmáls ef við á.
Hljómanöfn
Hér fyrir neðan eru hljómanöfn þýdd og útskýrð. Vinstra megin eru hljómanöfnin eins og þau eru skráð við sálmana skv. enskri hefð (t.d. B og Bb). Hægra megin eru skýringarnar skv. íslenskri málhefð (skandinavískri/þýskri). Það fer eftir stíl sálmalaga hversu marga tóna í hljómum fer vel á að spila eða sleppa. Þetta á t.d. við um forn sálmalög sem oftast eru sungin án undirleiks og eru hljómsetningar þeirra hugsaðar til stuðnings. Sé tónum sleppt gildir almennt að oft má sleppa 5-und og í sjöundarhljómum jafnvel 3-und.
B | B-dúr þríhljómur, H-dúr skv. þýskri hefð. |
B♭ | Bes-dúr þríhljómur, B-dúr skv. þýskri hefð. |
G | G-dúr þríhljómur; g-h-d. |
Gm | G-moll þríhljómur; g-b-d. |
G5 | Tónbilið g-d (5-und), engin 3-und. |
G6 | G-dúr þríhljómur að viðbættri stærri 6-und. Tónninn e bætist við þríhljóminn; g-h-d-e. |
Gm6 | G-moll þríhljómur að viðbættri stærri 6-und. Tónninn e bætist við þríhljóminn en 5-und er stundum sleppt; g-b-d-e. |
G7 | G-dúr hljómur með litilli 7-und; g-h-d-f. |
Gm7 | G-moll hljómur með litilli 7-und; g-b-d-f. |
G7(♭9) | G-dúr hljómur með litilli 7-und og litilli 9-und; g-h-d-f-as. |
G9 | G-dúr hljómur með litilli 7-und og stærri 9-und; g-h-d-f-a. |
Gm9 | G-moll hljómur með litilli 7-und og stærri 9-und; g-b-d-f-a. |
Gmaj7 | G-dúr hljómur með stærri 7-und; g-h-d-fís. |
Gmmaj7 | G-moll hljómur með stærri 7-und; g-b-d-fís. |
Gadd2 | G-dúr hljómur að viðbættri stærri 2-und; g-a-h-d. |
Gadd9 | G-dúr hljómur að viðbættri stærri 9-und (7-und ekki leikin með); g-h-d-a. |
G0 | Minnkaður þríhljómur, dimhljómur, sem samanstendur af litlum 3-undum; g-b-des. |
G07 | Minnkaður ferhljómur, dimhljómur, sem samanstendur af litlum 3-undum; g-b-des-fes (e). |
G0/B♭ | Minnkaður þríhljómur með 3-und í bassa (í 1. hljómhvörfum); b-des-g (b tvöfaldað í bassa). Oftast staðgengill forhljóms (hér E♭7 án grunntóns) í klassískri hljómfræði. |
G7(♭5) | G-dúr hljómur með litilli 7-und og minnkaðri 5-und; g-h-des-f (sjá nr. 721). |
Gm7(♭5) | Hálfminnkaður hljómur, G-moll með litilli 7-und og minnkaðri 5-und; g-b-des-f. |
G+ | G-dúr þríhljómur þar sem 5-undin er stækkuð; g-h-dís. |
G/D | G-dúr þríhljómur með tóninn d í bassa. |
Gm/D | G-moll þríhljómur með tóninn d í bassa. |
Gsus4 | G-hljómur með 4-und í stað 3-undar; g-c-d. |
G7sus4 | G-hljómur með 4-und í stað 3-undar og litilli 7-und; g-c-d-f. |
Gsus2 | G-hljómur með 2-und en án 3-undar; g-a-d. |
Gsus2/B | G-hljómur með 2-und og án 3-undar en með h í bassa; t.d. tónarnir h og a í vinstri hendi, og d og g í hægri. Einnig skrifaður Gadd9/B eða Bm7(♭5). |
C7sus2 | C-hljómur með litilli 7-und og stærri 2-und, án 3-undar; c-d-g-b (sjá nr. 299). |
B♭9sus4 | Bes-hljómur með litilli 7-und, stærri 9-und og 4-und, án 3-undar; b-es-f-as-c (sjá nr. 239a). |
Asus4(♭9) | A-hljómur með 4-und í stað 3-undar og viðbættri litilli 9-und; a-b-d-e (sjá nr. 73a). |
E♭7(♯11) | Es-dúr hljómur með litilli 7-und og stækkaðri 11-und; es-g-b-des-a eða es-des-g-a (sjá nr. 73a). |
B(♭9) | B-dúr hljómur með litilli 9-und; h-dís-fís-c (sjá nr. 501). |
B(♭9)/D♯ | B-dúr hljómur með litilli 9-und; h-dís-fís-c og dís í bassa (sjá nr. 791). |
E(♯9) | E-dúr hljómur með stækkaðri 9-und; e-gís-h-físís (g) (sjá nr. 729b). |
G(♯4) | G-hljómur með stækkaðri ferund; g-cís-h (sjá nr. 373b). |
E13 | E-dúr hljómur með litilli 7-und og 13-und (þ.e. 6-und í 2. áttund); e-gís-h-d-(fís-a)-cís (sjá nr. 272a). |
Bm♭2 | B-moll þríhljómur með litilli 2-und; h-c-d-fís (sjá nr. 477). |
Gm(♭6) | G-moll hljómur með litilli 6-und; g-b-d-es (sjá nr. 540). |
D♭maj7(♯4) | D♭-hljómur með stækkaðri ferund; des-(f)-g-as-c (sjá nr. 697). |
D(sus24) | D-hljómur; d-e-g-a (án 3-undar) (sjá nr. 493). |
Cmadd2 | C-moll þríhljómur með stærri 2-und; c-d-es-g (sjá nr. 427). |
Amadd4 | A-moll þríhljómur með 4-und; a-c-d-e (sjá nr. 503). |
Cmadd9 | C-moll þríhljómur með stórri 9-und; c-es-g-d (sjá nr. 112a). |
Cm6(add9) | C-moll hljómur með stórri 6-und og stórri 9-und; c-es-g-a-d (sjá nr. 477). |
(C) | Notað þar sem öll erindi sálmalags í moll enda á mollhljómi nema í síðasta erindi og er dúrhljómur þá valkvæður endir. |
N.C. | Enginn hljómur (no chord). |
Önnur tákn í nótnamyndum | |
---|---|
D.C. | Endurtaka frá upphafi lags. |
D.C. al Fine | Endurtaka frá upphafi lags og enda við Fine. |
Fine | Endir. |
D.S. | Dal segno, endurtaka frá segno-tákninu (sjá skýringu að neðan). |
D.S. al Coda | Endurtaka frá segno-tákninu, leika út að fyrra coda-merkinu og stökkva þaðan að seinna coda-merkinu (og leika til enda). |
Tákn fyrir Segno, markar stað sem endurtekið er frá (sjá skýringar að ofan). | |
Tákn fyrir Coda eða lokakafla. Eftir endurtekningu (eða í síðasta skipti) skal hlaupa yfir kafla sem rammaður er inn af tveimur svona táknum. Seinna táknið sýnir hvar lokakaflinn byrjar. Einnig notað með fyrirmælum D.S. al Coda (sjá skýringu að ofan). | |
Hak | Hök eru notuð sums staðar þar sem fermötur voru áður eða eru til staðar í raddsetningum. Einnig þar sem hefð er fyrir því að staldra við (þó smekksatriði hverju sinni). Þau eru ekki notuð til að afmarka hendingar. |
Skáhak | Öndunamerki í fornnum sálmalögum. |
Hálfstrik | Hendingamörk (nema í nr. 559). |
Ped. | Liggjandi tónn í pedal-bassa. |
unis. | Einradda. |
con rep. | Með endurtekningu. |
senza rep. | Án endurtekningar. |