Sálmabók

96. Íþyngi sorg þínu hjarta

Kirkjuár - Fasta

hymn notes
1 Íþyngi sorg þínu hjarta hér hiklaust þá flýðu til Jesú, virðist þér lokaður vegur hver viska hans sér þó ráð. Enginn jafnast á við hann, öllum vanda ráð við kann, Jesús er freistarann sjálfan sá en sigur vann. 2 Freisting ef verður að falli þér frelsarinn neyð þína skilur, sér hversu byrði þín erfið er en hann veit líka ráð. Enginn jafnast á við hann ... 3 Áttu' ekki lengur nóg afl og þor? Aftur það veitir þér Jesús! Enn meir en áður mun kraftur vor aukast af miskunn hans. Enginn jafnast á við hann ... 4 Bið þú í auðmjúkri bæn og trú, blessun þá Jesús mun veita. Eld hans og djörfung munt eignast þú, elska hans megnar það! Enginn jafnast á við hann ...


T Elsa K. Eklund 1936 – Bjarni Eyjólfsson, 1941
Är du bedrövad, av sorger trängd
L Elsa K. Eklund 1936
Är du bedrövad, av sorger trängd

Uppáhalds sálmar

Under Construction