Sálmabók

95. Þú varst leiddur út af anda

Kirkjuár - Fasta

hymn notes
1 Þú varst leiddur út af anda einn í freistni, Jesú minn, svo ég fengi' í sama vanda sigur fyrir kraftinn þinn. Andi heimsins ásækir, andi Drottins varðveitir, andi heimsins afli beitir, andi Drottins styrk mér veitir. 2 Hvað er lysting heimsins gæða heimsins andi' er býður mér? Holdsins mettun, holdsins fæða hjartanu' enga næring lér. Engan stoðar eintómt brauð, ei má sálin líða nauð, lifir hún á ljósi hreinu, lífsins orði Drottins einu. 3 Hvað er tign og hefðarbragur heimsins andi' er lofar mér? Svikagylling, fölskvi fagur, fánýtt hismi, brothætt gler. Drottins freista ei ég á, aldrei hátt ég keppa má. Ei mig nokkrir englar stoða ef ég svo mér fer í voða. 4 Hvað er auður heims og blómi heimsins andi' er sýnir mér? Verður allt að hismi' og hjómi, hjaðnar skjótt og deyr og þver. Vík þú frá mér, freistari, flæk mig ei í snörunni. Drottins eins er dýrðin sanna, Drottins eins er þjónkun manna. 5 Hvað er prjálið heims og blómi? Hvað er gengi jarðar valt? Það er tál og töfraljómi, trú því engu, smá það allt. Drottin treystu einan á, engin freisting grandar þá. Ef þú vakir, ef þú biður ei mun saka, Guð þig styður.


T Valdimar Briem – Sb. 1886
L Johann Schop 1642 – Paradísarlykill 1686 – Sb. 1751
Werde munter mein Gemüte

Biblíutilvísun Matt. 4.1–11

Uppáhalds sálmar

Under Construction