Sálmabók

94b. Við freistingum gæt þín

Kirkjuár - Fasta

hymn notes
1 Við freistingum gæt þín og falli þig ver því freisting hver unnin til sigurs þig ber. Gakk öruggur rakleitt mót ástríðuher en ætíð haf Jesúm í verki með þér. 2 Hinn vonda soll varast en vanda þitt mál og geymdu nafn Guðs þíns í grandvarri sál, ver dyggur, ver sannur því Drottinn þig sér, haf daglega Jesúm í verki með þér. 3 Hver sá er hér sigrar skal sigurkrans fá, í trúnni vér vinnum þótt verði margt á því sá er oss hjálpar við hrösun oss ver. Ó, hafðu þinn Jesúm í verki með þér.


T Horatio R. Palmer 1868 – Matthías Jochumsson – Sb. 1886
Yield not to temptation
L Jóhann Helgason 1978

Eldra númer 124
Eldra númer útskýring T

Uppáhalds sálmar

Under Construction