Sálmabók

88. Um sólarupprás ævi þinnar

Kirkjuár - Nýár til föstu

hymn notes
1 Um sólarupprás ævi þinnar þig árla kallar Drottinn þinn, í árdögg skærri skírnarinnar hann skírir þig sem verkmann sinn og vígir þig til víngarðsmanns að vinna fyrir ríkið hans. 2 Um þriðju stundu þig hann kveður er þinnar æsku sólin skín, þá fegurð lífs og glys þig gleður ei gleym að Drottinn sér til þín, í víngarð sinn hann vísar þér að vinna meðan dagur er. 3 Um sjöttu stund til starfs hann kveður er starf hans ríkis gengur tregt, þú hefur mikið höndum meður en heyr þú: Eitt er nauðsynlegt, að höndla dýrðar hnossið það sem hefur Guð þér ákvarðað. 4 Um hinstu stundu hann þig kallar er hnigin senn er ævisól, þá degi lífs að húmi hallar er hálfgjört enn það Guð þér fól. Þar til hin hinsta dagsbrún deyr í Drottins nafni vinn þú meir. 5 Og þegar síðast kvöldið kemur hann kallar sérhvern verkmann heim, hann geldur engum öðrum fremur en öllum saman gefur þeim. Ó, met sem gjöf en gjald ei það sem Guðs son hefur verðskuldað.


T Valdimar Briem – Sb. 1886
L Georg Neumark, 1657 – PG 1861
Wer nur den lieben Gott lässt walten

Eldra númer 120
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Matt. 20.1–16

Uppáhalds sálmar

Under Construction