Sálmabók

86. Þitt heilagt himinsáð

Kirkjuár - Nýár til föstu

hymn notes
1 Þitt heilagt himinsáð um heimsins akur stráð, það ljóss og lífs orð góða sem líf og heill er þjóða á erfitt upp að spretta hjá illgresinu þétta. 2 Ó, Guð, hve grátlegt er á góðu lítið ber en illt er oft hvað tíðast, á akri kirkju víðast nú þyrnar þéttir standa og þínu hveiti granda. 3 Ó, gef það, Guð, af náð að guðlegt orðasáð er sífellt sá þú lætur í sálum festi rætur. Lát ávöxt af því spretta til eilífs lífs, hinn rétta.


T Thomas Kingo 1689 – Nikolaj F.S. Grundtvig 1837 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
Ó, Guð, hve grátlegt er
L Jacob Regnart 1574 – Vulpius 1609 – Schein 1627 – Sb. 1619
Auf meinen lieben Gott

Biblíutilvísun Matt. 13.3–8

Uppáhalds sálmar

Under Construction