Sálmabók

84. Hve sælt hvert hús

Kirkjuár - Nýár til föstu

hymn notes
1 Hve sælt hvert hús er sinna meðal gesta þér sífellt býður heim, ó, Jesú kær. Í húsi því er hátíð æ hin besta er heimsókn þína dag hvern öðlast fær. 2 Hve sælt hvert hús ef hjón þar saman búa í helgri trú og von og kærleik eitt og sífellt augum sálna til þín snúa, um samfylgd þína biðja þrátt og heitt. 3 Hve sælt hvert húsið þar sem athöfn alla þér allir helga' og gjörvallt dagfar sitt. Þú síðar þá til samvistar munt kalla í sæluríka dýrðarhúsið þitt.


T Carl J.P. Spitta 1835 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
O selig Haus, wo man dich aufgenommen
L Andreas P. Berggreen 1856 – PG 1878
Tænk, når engang den tåge er forsvunden

Eldra númer 113
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Lúk. 19.1–9

Uppáhalds sálmar

Under Construction