Sálmabók

810. Drottinn Guð, þig göfgum vér

Lessálmar - Te Deum

Drottinn Guð, þig göfgum vér. Drottinn Guð, þig dýrkum vér. Þig, faðir eilífi, vegsamar öll veröldin. Þig lofar engla helgur her, allt heimsins veldi lýtur þér. Þig lofa sælir serafar, þér syngja vegsemd kerúbar: Heilagur, heilagur, heilagur ert þú, Guð, Drottinn allsherjar. Þín heilög vera, hátign þín um himna, jörð og geima skín. Þig prísa spámenn, postular og píslarvotta fylkingar og heilög kirkjan hér á jörð þér helgar lof og þakkargjörð. Ó, faðir vor, vér þökkum þér, ó, Kristur Drottinn, dýrð sé þér, ó, lífsins andi, lof sé þér, þig, heilög þrenning, heiðrum vér. Guðs sonur, Kristur, kóngur hár, sem komst að græða mein og sár, þú gerðist hold til hjálpar oss og háðung leiðst og dóm og kross. Þú hefur dauðans afli eytt og oss til lífsins veginn greitt. Þú situr Guðs á hægri hönd og hefur alheims ríkisvönd. Þú birtist enn á efstu tíð og allan dæmir heimsins lýð. Vér biðjum: Þjóna þína styð, sem þú með blóði keyptir frið. Veit þú vér öðlumst arfleifð þá sem ávann náð þín, rík og há. Þinn söfnuð, Herra, hólpinn ger, gef honum eilíft líf með þér. Veit honum styrk og vörn og skjól og vegsemd við þinn konungsstól. Nafn þitt sé blessað nær og fjær og náð þín trú og dýrðarskær. Við synd og háska hverja stund oss hlífi, Guð, þín sterka mund. Miskunna oss, í líkn oss leið, ver ljós og stoð í allri neyð. Hjá einum þér er athvarf, hlíf, vor eina hjálp og sanna líf. Guð allrar vonar, ver oss hjá og veit oss þína dýrð að sjá.


T Fornkirkjulegur sálmur – Martin Luther 1529 – Sb. 1589 – Sigurbjörn Einarsson – Sb. 1972
L

Uppáhalds sálmar

Under Construction