Sálmabók

80a. Góðan ávöxt Guði berum

Kirkjuár - Nýár til föstu

hymn notes
1 Góðan ávöxt Guði berum, gróðursettir af hans náð þessa heims í akri erum, æðra lífs þó til var sáð. Góðan jarðveg gaf oss Drottinn góð svo jurt hér yrði sprottin. 2 Lífdögg hann oss sendi sína, sinnar skírnar vatnið tært. Ljósið sitt hann lét oss skína, lífsins orða blysið skært. Náðargeisla himins hlýja hann oss jafnan sendi nýja. 3 Góðan ávöxt Guði berum, góðan ávöxt sjálfum oss, eigi lengur visnir verum, vöxum upp við Jesú kross. Lát oss þar við lífstréð rétta, lífsins faðir, ávallt spretta.


T Valdimar Briem – Sb. 1886
L Johann Crüger 1649 – Sb. 1997
Herr, ich habe missgehandelt

Eldra númer 117
Eldra númer útskýring T

Uppáhalds sálmar

Under Construction