Sálmabók

809. Davíðssálmur 36 (6-10)

Lessálmar - Davíðssálmar

Andstef (Sálm 30.13) Drottinn, Guð minn, ég vil þakka þér að eilífu. Drottinn, til himna nær miskunn þín, til skýjanna trúfesti þín.     Réttlæti þitt er sem hæstu fjöll,     dómar þínir sem reginhaf.     Mönnum og skepnum hjálpar þú, Drottinn. Hversu dýrmæt er miskunn þín, ó Guð, mannanna börn leita hælis í skugga vængja þinna.     Þau seðjast af nægtum húss þíns     og þú lætur þau drekka úr lækjum unaðssemda þinna því að hjá þér er uppspretta lífsins, í þínu ljósi sjáum vér ljós. Drottinn, Guð minn, ég vil þakka þér að eilífu. Dýrð sé Guði, föður og syni og heilögum anda     svo sem var í upphafi     er og verður um aldir alda. Amen. Drottinn, Guð minn, ég vil þakka þér að eilífu.


T
L

Uppáhalds sálmar

Under Construction