Sálmabók

804. Davíðssálmur 16

Lessálmar - Davíðssálmar

Andstef (Sálm. 86.11) Vísa mér veg þinn, Drottinn, að ég gangi í sannleika þínum. Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.     Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn,     ég á engin gæði nema þig.“ Drottinn, þú ert hlutskipti mitt og minn afmældi bikar, þú heldur uppi hlut mínum.     Mér féllu að erfðahlut indælir staðir     og arfleifð mín líkar mér vel. Ég lofa Drottin sem gefur mér ráð, jafnvel um nætur er ég áminntur hið innra.     Ég hef Drottin ætíð fyrir augum,     þegar hann er mér til hægri handar hnýt ég ekki. Fyrir því fagnar hjarta mitt, hugur minn gleðst og líkami minn hvílist í friði     því að þú ofurselur helju ekki líf mitt,     sýnir ekki gröfina þeim sem treystir þér. Kunnan gerðir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu. Vísa mér veg þinn, Drottinn, að ég gangi í sannleika þínum. Dýrð sé Guði, föður og syni og heilögum anda     svo sem var í upphafi     er og verður um aldir alda. Amen. Vísa mér veg þinn, Drottinn, að ég gangi í sannleika þínum.


T
L

Uppáhalds sálmar

Under Construction