Sálmabók

801. Davíðssálmur 19 (2-3, 8-10)

Lessálmar - Davíðssálmar

Andstef (Sálm. 57.6) Sýn þig himnum hærri, Guð. Dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina. Himnarnir segja frá Guðs dýrð, festingin kunngjörir verkin hans handa.     Hver dagur kennir öðrum     og hver nótt boðar annarri speki. Engin ræða, engin orð, ekki heyrist raust þeirra.     Þó berst boðskapur þeirra um alla jörð     og orð þeirra ná til endimarka heims.     Þar reisti hann röðlinum tjald. Lögmál Drottins er lýtalaust, hressir sálina,     vitnisburður Drottins er áreiðanlegur,     gerir hinn fávísa vitran. Fyrirmæli Drottins eru rétt, gleðja hjartað.     Boðorð Drottins eru skír,     hýrga augun. Ótti Drottins er hreinn, varir að eilífu.     Ákvæði Drottins eru sannleikur,     eru öll réttlát. Sýn þig himnum hærri, Guð. Dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina. Dýrð sé Guði, föður og syni og heilögum anda     svo sem var í upphafi     er og verður um aldir alda. Amen. Sýn þig himnum hærri, Guð. Dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina.


T
L

Uppáhalds sálmar

Under Construction