Sálmabók

800. Davíðssálmur 23

Lessálmar - Davíðssálmar

Andstef (Sálm. 86.11) Vísa mér veg þinn, Drottinn, að ég gangi í sannleika þínum. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta.     Á grænum grundum lætur hann mig hvílast,     leiðir mig að vötnum þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns.     Þótt ég fari um dimman dal     óttast ég ekkert illt     því að þú ert hjá mér,     sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býrð mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyrð höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur.     Gæfa og náð fylgja mér     alla ævidaga mína     og í húsi Drottins     bý ég langa ævi. Vísa mér veg þinn, Drottinn, að ég gangi í sannleika þínum. Dýrð sé Guði, föður og syni og heilögum anda     svo sem var í upphafi     er og verður um aldir alda. Amen. Vísa mér veg þinn, Drottinn, að ég gangi í sannleika þínum.


T
L

Uppáhalds sálmar

Under Construction