Sálmabók

8. Við kveikjum fyrsta kerti á

Kirkjuár - Aðventa og jól

hymn notes
1 Við kveikjum fyrsta kerti á. Það kennt við spádóm er um fátækt barn í fjárhúskró með frið í hjarta sér. 2 Við kveikjum öðru kerti á. Af kærleik fyllast menn. Sitt nafn það ber af Betlehem, þar barnið fæðist senn. 3 Við kveikjum þriðja kerti á. Það kennt er hirða við sem gættu kinda’ um napra nótt í nánd við fjárhúsið. 4 Við kveikjum fjórða kerti á. Nú komin eru jól og englar syngja undurblítt svo ómar heims um ból.


T Sigurd Muri 1963 – Herdís Egilsdóttir, 1997
L Emmy Köhler 1898 – Vb. 1991
Nu tändas tusen juleljus

Uppáhalds sálmar

Under Construction