Sálmabók

799. Davíðssálmur 1

Lessálmar - Davíðssálmar

Andstef (Sálm. 52.10) Ég treysti á náð Guðs um aldur og æfi. Sæll er sá sem eigi fer að ráðum óguðlegra, eigi gengur götur syndara og eigi situr meðal háðgjarnra     heldur hefur yndi af leiðsögn Drottins     og hugleiðir lögmál hans dag og nótt. Hann er sem tré gróðursett hjá lindum, það ber ávöxt sinn á réttum tíma og blöð þess visna ekki. Allt sem hann gerir, lánast honum.     Óguðlegum farnast á annan veg,     þeir hrekjast sem hismi í stormi. Því hvorki standast óguðlegir fyrir dómi né syndarar í söfnuði réttlátra.     Drottinn vakir yfir vegi réttlátra     en vegur óguðlegra endar í vegleysu. Ég treysti á náð Guðs um aldur og æfi. Dýrð sé Guði, föður og syni og heilögum anda     svo sem var í upphafi     er og verður um aldir alda. Amen. Ég treysti á náð Guðs um aldur og æfi.


T
L

Uppáhalds sálmar

Under Construction