Sálmabók

798. Davíðssálmur 65 (2-6)

Lessálmar - Davíðssálmar

Andstef (Sálm. 113.3) Frá sólarupprás til sólarlags sé nafn Drottins vegsamað. Þér ber lofsöngur, Guð á Síon, og við þig séu heitin efnd.     Þú sem heyrir bænir,     til þín leita allir menn. Þegar misgjörðir vorar verða oss um megn fyrirgefur þú oss.     Sæll er sá sem þú velur og lætur nálgast þig,     hann fær að dveljast í forgörðum þínum. Vér mettumst af gæðum húss þíns, heilagleik musteris þíns.     Þú bænheyrir oss af réttlæti     með ógnvekjandi verkum,     þú Guð hjálpræðis vors, þú athvarf allra endimarka jarðarinnar og fjarlægra stranda. Frá sólarupprás til sólarlags sé nafn Drottins vegsamað. Dýrð sé Guði, föður og syni og heilögum anda     svo sem var í upphafi     er og verður um aldir alda. Amen. Frá sólarupprás til sólarlags sé nafn Drottins vegsamað.


T
L

Uppáhalds sálmar

Under Construction