Sálmabók

797. Davíðssálmur 57 (8-12)

Lessálmar - Davíðssálmar

Andstef (Sálm. 138.2) Ég lofa nafn þitt sakir miskunnar þinnar og trúfesti. Hjarta mitt er stöðugt, Guð, hjarta mitt er stöðugt. Ég vil syngja og leika.     Vakna þú, sál mín,     vakna þú, harpa og gígja,     ég vil vekja morgunroðann. Ég vil lofa þig meðal lýðanna, Drottinn, vegsama þig meðal þjóðanna     því að miskunn þín nær til himna     og trúfesti þín til skýjanna. Sýn þig himnum hærri, Guð. Dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina. Ég lofa nafn þitt sakir miskunnar þinnar og trúfesti. Dýrð sé Guði, föður og syni og heilögum anda     svo sem var í upphafi     er og verður um aldir alda. Amen. Ég lofa nafn þitt sakir miskunnar þinnar og trúfesti.


T
L

Uppáhalds sálmar

Under Construction