Sálmabók

794. Eilíf miskunn, að þér taktu ísaláð

Trúarlífið - Land og þjóð

hymn notes
1 Eilíf miskunn, að þér taktu ísaláð, vort fósturland, yfir því um aldir vaktu, öllu hrind sem býr því grand. Styð og vernda landsins lýð, lát þú blítt á hverri tíð honum mót til heilla skína helga kærleiksgeisla þína. 2 Ljósið þinna lífsins orða lát oss aldrei hverfa frá, vantrú oss og villu forða, vegum sannleiks halt oss á. Drottinn, gef um aldir æ Íslands hverri sveit og bæ hnossið það sem heill er þjóða: hreina trú og siði góða. 3 Efl þú, Guð, af æðstri mildi allan þjóðar vorrar hag, hvað sem fram ei fer sem skyldi fær þú hjá oss brátt í lag. Sérhvern lát í sinni stétt sína köllun stunda rétt, ungum kenna' að iðja' og biðja, auðnu lands og niðja styðja.


T Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
L Johann Schop 1642 – Paradísarlykill 1686 – Sb. 1751
Werde munter mein Gemüte

Eldra númer 529
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction