Sálmabók

793. Göngum vér fram þótt grýtt sé leið

Trúarlífið - Land og þjóð

hymn notes
1 Göngum vér fram þótt grýtt sé leið. Gott er með þér að stríða. Þó að oss mæti þraut og neyð þurfum vér ei að kvíða. Þú barst þinn kross á undan oss, ástvinur þjáðra manna. Vertu oss hjá því hvað má þá hjörð þinni fögnuð banna? 2 Brautina dimmu bar vor þjóð brennandi þorsta' á tungu. Aldir runnu með eld og blóð, eggjar og þyrnar stungu. Græðandi skein á mannleg mein miskunnar þinnar kraftur. Þú gafst oss lind og lausn frá synd, ljómaði sólin aftur. 3 Heimslán er valt sem hrökkvi strá, hamingjan skjótt vill bresta. Sæll er því hver sem öruggt á ástvinarskjólið besta. Hjálp þín er næst þá neyð er stærst. Náðartíminn er hljóður. Leysti vor bönd þín heilög hönd. Hvar er vor þakkaróður? 4 Hefjum í dag til dýrðar þér, Drottinn vor, lofgjörð nýja. Gjörum það fyrr en of seint er undir þinn væng að flýja. Gef að vor þjóð ei missi móð mæti oss élið þunga. Helgist vort ráð. Um lög og láð lofi þig sérhver tunga.


T Jón Magnússon – Sb. 1945
L Stefán Arason 2020

Eldra númer 522
Eldra númer útskýring T

Uppáhalds sálmar

Under Construction