Sálmabók

791. Er Kristur helgaði land og lýð

Trúarlífið - Land og þjóð

hymn noteshymn notes
1 Er Kristur helgaði land og lýð fór ljós og ilmur um strönd og hlíð, þá gladdist hvert strá sem Ísland ól og lofaði lífsins sól. 2 Þá sungu vindarnir vorsins óð um vonanna ríki, nýja þjóð, og daggir minntust við dal og tind sem tilbáðu lífsins lind. 3 Og ljósið breiddist um berg og völl, þá brostu íslensku djásnin öll, þar geislaði þökk og gleði lands sem orðið var óðal hans. 4 Hans mark er dregið í heiðið hátt, á hvítan jökul og fjallið blátt, í rauða glóð og hvern geislakrans frá draumum og dul vors lands. 5 Sjá, náð hans skín gegnum norðurljós, hans nafn er á björk og engjarós, allt líf og sú von sem Ísland á er geisli hans huga frá. 6 Vort landið hrjúfa með heiðar brár skal hans um ókomin þúsund ár, hvert barn sem fæðist er bæn og þrá og svarið er honum hjá. 7 Og farsæld, blessun, hins frjálsa lands er fánans bæn sem er merki hans, þess konungs sem Ísland kaus og laut í frelsi sem förunaut. 8 Nú syngja vindarnir vorsins óð um vonanna ríki, kristna þjóð, og daggir Guðs kyssa dal og tind. Vér bergjum á lífsins lind.


T Sigurbjörn Einarsson 2000 – Vb. 2013
L Veigar Margeirsson 2000 – Vb. 2013

Eldra númer 951
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction