Sálmabók

790. Guð sem í árdaga

Trúarlífið - Land og þjóð

hymn notes
1 Guð sem í árdaga oss reisti bústað á jörðu kallaði ljósið frá myrkri, landið úr sævi, skapaði Ísland með eldi. 2 Þjóð vor hin íslenska alin hjá Þingvallabergi valdi sér leiðsögn í Kristi, kölluð af honum, þáði hans líf sér til lausnar. 3 Guðs andi heilagi, heyr þú er kirkja þín biður: Kom þú í Orði og mætti, endurnær börn þín, umskapa lýð þinn sem landið.


T Kristján Valur Ingólfsson 2000 – Vb. 2013
L Hörður Áskelsson 2000 – Vb. 2013

Eldra númer 950
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction