Sálmabók

788. Talar Jesús um myrkra makt

Trúarlífið - Land og þjóð

hymn notes
1 Talar Jesús um myrkra makt. Merkið það, valdstjórnendur. Yður skal nú í eyra sagt: Umdæmið heims tæpt stendur. 2 Ljósið myrkrin burt leiðir frí með ljóma birtu sinnar. Varast að skýla skálkinn því í skugga maktar þinnar. 3 Drottinn Jesú, þú lífsins ljós, lýstu valdstjórnarmönnum svo þeir sem ráða yfir oss eflist að dyggðum sönnum.


T Hallgrímur Pétursson Ps. 8
L Hafsteinn Þórólfsson 2019

Uppáhalds sálmar

Under Construction