Sálmabók

786. Upp, þúsund ára þjóð

Trúarlífið - Land og þjóð

hymn notes
1 Upp, þúsund ára þjóð, með þúsund radda ljóð. Upp, allt sem er og hrærist og allt sem lífi nærist. Upp, harpa Guðs, þú heimur. Upp, haf og landageimur. 2 Skín, sól, á sumarfjöll og signdu vatnaföll, breið geisla guðvefsklæði á grundir, skóg og flæði, gjör fjöll að kristallskirkjum og kór úr bjarga virkjum. 3 Krjúp lágt, þú litla þjóð, við lífsins náðarflóð. Eilífum Guði alda þú átt í dag að gjalda allt lánsfé lífs þíns stunda með leigum þúsund punda. 4 Upp, upp, þú Íslands þjóð með eldheitt hjartablóð, Guðs sólu signd er foldin, öll sekt í miskunn goldin: Þú átt, þú átt að lifa öll ár og tákn það skrifa. 5 Kom, Jesú Kristí trú, kom, kom og í oss bú, kom, sterki kærleiks kraftur, þú kveikir dáið aftur. Ein trú, eitt ljós, einn andi í einu fósturlandi. 6 Guð faðir, lífs vors líf, þú lands vors eilíf hlíf, sjá, í þér erum, hrærumst og af þér lifum, nærumst, þú telur minnstu tárin og tímans þúsund árin.


T Matthías Jochumsson 1874 – Sb. 1945
L Jacob Regnart 1574 – Vulpius 1609 – Schein 1627 – Sb. 1619
Auf meinen lieben Gott

Eldra númer 519
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction