Sálmabók

785. Yfir voru ættarlandi

Trúarlífið - Land og þjóð

hymn notes
Yfir voru ættarlandi, aldafaðir, skildi halt. Veit því heillir, ver það grandi, virstu' að leiða ráð þess allt. Ástargeislum úthell björtum yfir lands vors hæð og dal. Ljós þitt glæð í lýðsins hjörtum, ljós er aldrei slokkna skal.


T Steingrímur Thorsteinsson, 1909 – Sb. 1972
L Sigfús Einarsson, 1916 – Vb. 1976

Eldra númer 526
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction