Sálmabók

78. Sjá, nú er runninn nýársdagur

Kirkjuár - Nýár til föstu

hymn notes
1 Sjá, nú er runninn nýársdagur en nótt hinn liðna tímann fól, að nýju blómgast náðarhagur því nú skín Drottins elsku sól. Ó, Guð, vor faðir, þökk sér þér, af þinni miskunn fögnum vér. 2 Hve mjög á liðnum æviárum þér ávallt brotið höfum mót. Vér biðjum því með trega' og tárum í trausti Krists af hjartans rót: Um eilífð hyl þú afbrot vor og afmá nú vor syndaspor. 3 Með nýju ári nú vér biðjum að nýjan mátt oss gefir þú svo þér til dýrðar allt vér iðjum með elsku, hlýðni' og sannri trú. Þinn helgur andi leggi' oss lið svo lesti' og syndir skiljumst við. 4 Krýn þú hið nýja náðarárið með náðargæðum himni frá. Græð þinna barna sérhvert sárið, í sorg og neyð þeim vertu hjá. Æ, farsæl vora fósturjörð og frelsa þína kristnu hjörð. 5 Í Jesú nafni öll vor efni þér, eilíf gæskan, felum nú. Í verki' og hvíld, í vöku' og svefni oss verndi' og blessi náð þín trú. En þegar dauðans dregst að nótt, ó, Drottinn, gef að sofnum rótt. 6 Oss síðar vek til lífs í ljósi er ljómar dýrðarsólin skær og sælan æ með sigurhrósi og sérhvert unaðsblómið grær þar sem að nýár eilíft er og eilíft friðarlíf hjá þér.


T Páll Jónsson – Vb. 1861
L König 1738 – Ssb. 1936
Ach sagt mir nichts von Gold und Schätzen / O daß ich tausend Zungen hätte

Eldra númer 569
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction