Sálmabók

779. Drottinn líknsamur, Herra hreinn

Trúarlífið - Sjómannasálmar

hymn notes
1 Drottinn líknsamur, Herra hreinn, hjálparinn allra manna, þú sem að ræður öllu einn, ástsemda miskunn sanna, bænheyr þú mig, þess bið ég þig í blessaða Jesú nafni, með ljúfri náð og legg á ráð um lífs og sálar efni. 2 Þín náð það hefur svo til sett að sérhver skyldi læra embætti sitt að iðka rétt og með handbjörg sig næra um lönd og sjó en liðsemd þó lofaðir þeim að veita sem treysta þér en síðan sér sinnar næringar leita. 3 Varðveit þú mig og veg minn greið, vernd þín yfir mér standi, frá beiskri sorg og bráðum deyð bæði á sjó og landi. Jesús minn trúr, eymd allri úr einn kanntu mig að leysa, vertu mér næst þá hér sem hæst hafsins bylgjurnar geysa. 4 Í Guðs nafni og ótta enn eftir hans náðar orði veiðarfærinu vil ég senn varpa frá skipsins borði, þetta mitt verk, miskunnin merk, minn Herra Jesús blessi, veiti hann mér hvað vild hans er, von mín og bón er þessi.


T Hallgrímur Pétursson, 1730 – Sb. 1945
Sjóferðasálmur
L Kristín Jóhannesdóttir 2009

Eldra númer 496
Eldra númer útskýring T

Uppáhalds sálmar

Under Construction