Sálmabók

778. Hann sagði þeim að sigla á djúp

Trúarlífið - Sjómannasálmar

hymn notes
1 Hann sagði þeim að sigla' á djúp og sækja þar fisk í net. Þótt ördauð virtust vötnin gljúp þeir veiddu og settu met. Þeir fylgdu honum fram á leið og friður af honum skein. Hann lægði storm og létti neyð og læknaði sár og mein. Hann þrauta'- og syndabyrði ber og blessar líf á jörðu hér. Á sjó og landi ljósið er og líkn hans undan fer. 2 Er nístir hjarta krossins kvöl og kæfandi myrkur hans, hann allra reynir eymd og böl og angist hvers syndugs manns. Hann opnar þannig lífsins lind sem liggur að hjartans æð svo endurskapast mannsins mynd er máttugt ljós skín úr hæð. Hann þrauta'- og syndabyrði ... 3 Er leggja sjómenn langt á mið og líta á kólgusvið þeir æðruleysis finna frið með frelsarann sér við hlið. Þeir fylgja honum fram á leið og fá styrk hans, hjálp og lið. Hann lægir öldur, léttir neyð og lífgar hin djúpu mið. Hann þrauta'- og syndabyrði...


T Gunnþór Þ. Ingason 2000
L Arnór B. Vilbergsson 2000

Uppáhalds sálmar

Under Construction