Sálmabók

777. Sólin signir hafið

Trúarlífið - Sjómannasálmar

hymn notes
1 Sólin signir hafið, sindrar bárutrafið. Sköpun lofar háan Herra sinn. Sælt er mér á sævi, sigli mína ævi. Guði þakka góðan afla minn. 2 Allt er í hans hendi, ákall honum sendi: Bið að gæti bátsins Drottinn minn. Æ þú ert mér nærri, öllum mætti hærri, veit mér, Drottinn, vernd í hvert eitt sinn. 3 Þá ég sný af sævi sjómanns finnst mér ævi sælli því sem ég á foldu finn. Jafnt í brimi' og blíðu báts þá stend við síðu, haf mig þér í hendi, Drottinn minn.


T Haukur Ágústsson 2013
L Haukur Ágústsson 2013

Uppáhalds sálmar

Under Construction