Sálmabók

774. Ég er á langferð um lífsins haf

Trúarlífið - Sjómannasálmar

hymn notes
1 Ég er á langferð um lífsins haf og löngum breytinga kenni. Mér stefnu frelsarinn góður gaf, ég glaður fer eftir henni. Mig ber að dýrðlegum, ljósum löndum, þar lífsins tré gróa' á fögrum ströndum við sumaryl og sólardýrð. 2 Og stundum sigli ég blíðan byr og bræðra samfylgd þá hlýt ég og kjölfars hinna er fóru fyrr án fyrirhafnar þá nýt ég. Í sólarljósi er særinn fríður og sérhver dagurinn óðar líður er siglt er fyrir fullum byr. 3 En stundum aftur ég aleinn má í ofsarokinu berjast. Þá skellur niðadimm nóttin á svo naumast hægt er að verjast. Ég greini' ei vita né landið lengur en ljúfur Jesús á öldum gengur um borð til mín í tæka tíð. 4 Mitt skip er lítið en lögur stór og leynir þúsundum skerja. En granda skal hvorki sker né sjór því skipi' er Jesús má verja. Hans vald er sama sem var það áður, því valdi' er særinn og stormur háður. Hann býður: „Verði blíðalogn!“ 5 Þá hinsti garðurinn úti er ég eygi land fyrir stöfnum og eftir sólfáðum sæ mig ber að sælum, blælygnum höfnum. Og ótal klukkur ég heyri hringja og hersing ljósengla Drottins syngja: "Velkominn hingað heim til vor!" 6 Lát akker falla! Ég er í höfn. Ég er með frelsara mínum. Far vel, þú æðandi dimma dröfn, vor Drottinn bregst eigi sínum. Á meðan akker í ægi falla ég alla vinina heyri kalla sem fyrri urðu hingað heim.


T Henry A. Tandberg 1909 – Valdemar V. Snævarr, 1926 – Sb. 1997
Jeg er en seiler på livets hav
L Klaus Østby 1909 – Sb. 1997
Jeg er en seiler på livets hav

Eldra númer 720
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction