Sálmabók

773. Nú bráðum vetrar byrja él

Trúarlífið - Haust og vetur

hymn notes
1 Nú bráðum vetrar byrja él, nú bliknar grund og hlíð. Með fegurð þína far þú vel, þú fagra sumartíð. 2 Senn stynur vetrarvinda raust, nú visna blómin skær. Þótt visni sérhvað hér um haust í hjarta vonin grær. 3 Þótt lækki sól og lýsi skammt ei lækkar Drottins náð, þótt vaxi nótt ei villist samt Guðs vísdóms eilíft ráð. 4 Þótt fölni sérhvert blóm og blað og blikni hvert eitt strá Guðs elska – víst vér vitum það – ei visna þannig má. 5 Þótt falli hvert að hausti blóm ei hverfur gleðin mér. Frá Betlehem ég heyri hljóm er huggun ávallt lér. 6 Ég veit hvar best mín blómgast von er bliknar jörðin hér: Það tré, hvar líf sitt lét Guðs son, mér lífsins ávöxt ber. 7 Þótt fölni grös um fjall og dal og frjósi vötn og lönd mín trú á hann ei hverfa skal sem heljar leysti bönd. 8 Um eilíft vor hann von mér gaf er vetur ævi þver, sjálft lífið gröf er gengið af. Það gleði dýrst mér er.


T Caspar J. Boye 1833 – Valdimar Briem – Sb. 1886
Dybt hælder året i sin gang
L William Tans‘ur 1734 – Sb. 1997
BANGOR (Tansur)

Eldra númer 485
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction