Sálmabók

771. Kominn er veturinn

Trúarlífið - Haust og vetur

hymn notes
1 Kominn er veturinn. Kærasti faðir á hæðum, kvíða vér mættum ef ei undir vernd þinni stæðum. Hvað erum vér? Hjálpræði vort er hjá þér öllum sem útbýtir gæðum. 2 Þú sem gafst vorið og þú sem gafst sumarið blíða, þú sem gafst blessun og hjálpræði liðinna tíða, samur ert þú. Syrgja hví skyldum vér nú eða því komanda kvíða? 3 Vér viljum þakka þér, velgjörðum þínum ei gleyma, vér viljum treysta þér, oss muntu framvegis geyma. Fulltreystum því framrás með tímans á ný líkn þína látir fram streyma. 4 Gjör við oss, faðir, sem gæska þín hollast oss metur, gef oss upp sakir og hjálpa' oss að þóknast þér betur. Að þér oss tak, yfir oss hverja stund vak, blessa hinn byrjaða vetur.


T Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi – Sb. 1886
L Stralsund 1665 – Halle 1741 – PG 1861
Lobe den Herren, den mächtigen König

Eldra númer 484
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction