Sálmabók

770. Ó, blessuð vertu sumarsól

Trúarlífið - Vor og sumar

hymn notes
1 Ó, blessuð vertu sumarsól er sveipar gulli dal og hól og gyllir fjöllin himinhá og heiðarvötnin blá. Nú fossar, lækir, unnir, ár sér una við þitt gyllta hár. Nú fellur heitur haddur þinn um hvíta jökulkinn. 2 Þú klæðir allt í gull og glans, þú glæðir allar vonir manns og hvar sem tárin kvika' á kinn þau kyssir geislinn þinn. Þú fyllir dalinn fuglasöng, nú finnast ekki dægrin löng og heim í sveitir sendirðu' æ úr suðri hlýjan blæ. 3 Þú frjóvgar, gleður, fæðir allt um fjöll og dali' og klæðir allt og gangirðu' undir gerist kalt, þá grætur þig líka allt. Ó, blessuð vertu sumarsól er sveipar gulli dal og hól og gyllir fjöllin himinhá og heiðarvötnin blá.


T Páll Ólafsson 1875
Sumarkveðja
L Ingi T. Lárusson, 1915

Uppáhalds sálmar

Under Construction