Sálmabók

769. Nú svífur röðull sumarfagur

Trúarlífið - Vor og sumar

hymn notes
1 Nú svífur röðull sumarfagur sem svanur fram við gullin ský, nú byrjar aftur blíðuhagur, nú brosir jörðin fædd á ný, nú lyftir Drottinn sinni sjón og signir loft og höf og frón. 2 Nú opna blómstrin augun þýðu, nú ilmar þeirra konungsskart, þau drekka Herrans dýrðarblíðu með daggartár af gleði bjart og hrósa þögul Herrans dýrð með hugsun sem ei verður skýrð. 3 Nú mundu fjöll og hálsar hljóða og hefja Guði lofsöngsmál ef lífsins föður gæsku góða ei göfga vildi mannsins sál: Lof sé þér, Guð, sem minnist mín á meðan nokkur geisli skín.


T Matthías Jochumsson 1870 – Sb. 1945
L Lars Nielsen 1876 – BÞ 1903
Saa vidt som Solens Straaler stige

Eldra númer 481
Eldra númer útskýring T

Uppáhalds sálmar

Under Construction