Sálmabók

768. Göfguð sé gæskan þín

Trúarlífið - Vor og sumar

hymn notes
1 Göfguð sé gæskan þín, Guð minn, í hverjum sal. Fótspor þú mælir mín og minna daga tal, leiðandi líknar hendi sorganna gegnum dimman dal. 2 Eg má í elsku' og trú alvaldan prísa þig. Enginn annar en þú og ást þín föðurlig blessað og hjálpað hefur mér á lífsdaga myrkum stig. 3 Skortir mig munn og mál að mikla kraftinn þinn. Andvarpar auðmjúk sál upp til þín, faðir minn. Eilífðin öll þig prísi, sem eg hjá þér um síðir finn. 4 Þá augunum upp til þín eg lyfti' úr hryggðar dal og sumarsólin skín, sú æ mig minna skal á þína miklu mildi, Drottinn í hæstum dýrðar sal. 5 Annastu enn minn hag, ó, Guð, í hverjum rann. Sendu mér sumardag sælan og blessaðan. Leið þú mig lukku stíga, meðan þín náð mér aldurs ann. 6 Heyr mína hjartans bón: Um hagina mína sjá, forða við friðar tjón og farsæld mér veittu þá á þig einan að vona. Þá hef ég allt sem þörf er á.


T Sigurður Breiðfjörð 1822 – Sb. 1972
L Statius Olthof 1585? – Buchanan 1616 – Hymnodia Sacra 1742 – Sb. 1772 – Vb. 1946

Eldra númer 477
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction