Sálmabók

766a. Nú skrúða grænum skrýðist fold

Trúarlífið - Vor og sumar

hymn notes
1 Nú skrúða grænum skrýðist fold og skæru augun ljóma er fagna blómin frelsi' úr mold og frosts og vetrar dróma. Nú barnaraddir blíðar tjá að birtan sigrað hefur og allt í náð umvefur. 2 Í laufi fuglinn, lamb í hjörð og lóa frjáls í heiði þá lofgjörð inna lífs sem jörð á löngum vetri þreyði. Af gleði óma götur, torg og gleði birtir sanna öll önn og iðja manna. 3 Þú Guð, sem sumar gefur jörð og gleði barna þinna, gef allri þinni eignarhjörð þá elsku' og gleði' að finna og lúta þér í lotning, trú, að lífi öllu hlúa, sem systkin saman búa.


T Carl D. af Wirsén 1889 – Karl Sigurbjörnsson 1990 – Sb. 1997
Sommarpsalm (En vänlig grönskas rika dräkt)
L Waldemar Åhlén 1933 – Sb. 1997
Sommarpsalm (En vänlig grönskas rika dräkt)

Eldra númer 719
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction