Sálmabók

765. Nú strýkur vorið völl og dal

Trúarlífið - Vor og sumar

hymn notes
1 Nú strýkur vorið völl og dal svo vökna brár í fjallasal. Nú lifna grös um laut og börð, sjálft lífið vekur freðna jörð. 2 Heyr farfuglanna kvæðaklið er kría, tjaldur bregða við, með gleðiraust og söngvaseim úr suðurlöndum snúa heim. 3 Sú fagra fuglaparadís, hún flytur Guði lof og prís og syngur ljóð um líf og vor svo léttir yfir hverri skor. 4 Og fagna má sem fugl í söng við ferðalok í jarðarþröng sá er þú leiddir langan veg. Ó, lífsins Guð, þig tigna ég.


T Tummas N. Djurhuus 1971 – Kristján Valur Ingólfsson 2010 – Vb. 2013
Nú strýkur vár um heimlandsvøll
L Knút Olsen 1978 – Vb. 2013
Nú strýkur vár um heimlandsvøll

Eldra númer 946
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction