Sálmabók

760. Nú heilsar vorsins blíði blær

Trúarlífið - Vor og sumar

hymn notes
1 Nú heilsar vorsins blíði blær og brosir himinn, land og sær, allt lofar ljósið bjarta. Ó, syng af gleði, sála mín, lát sumar Drottins ná til þín og lífga hug og hjarta. 2 Allt vaknar nú sem vakna má, hver von og þrá sem jörðin á til birtu Guðs er borin, það vottar allt sem anda nær, það allt sem geisli snortið fær og leitt til lífs á vorin. 3 Sú fegurð öll sem auga sér, hver unaðsrödd sem berst að mér og angan allra blóma er vitni þess sem vænta má í vorsins ríki Guði hjá, í lífsins páskaljóma. 4 Lát, faðir, orð og anda þinn svo endurnýja huga minn að vor þar verða megi og vöxtur sem þér vitni ber og vaknar nýr við sól hjá þér á lífs míns lokadegi.


T Paul Gerhardt 1653 – Sigurbjörn Einarsson 1996 – Sb. 1997
Geh aus mein Herz und suche Freud / I denna ljuva sommartid
L Nathan Söderblom 1916 – Vb. 1976
I denna ljuva sommartid

Eldra númer 718
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction