Sálmabók

76. Rís upp, mín sál

Kirkjuár - Nýár til föstu

hymn notes
1 Rís upp, mín sál, að nýju nú og nýja lofgjörð byrja þú því nú er nýtt ár komið, sjá, ný gjöf þér enn nýveitt er, hið nýja himnablómið. 2 Ó, lof sé þér fyrir' liðið ár, þú lífs og náðar Drottinn hár, þú æðsti kærleiks kraftur, sem náð gafst mér svo nú ég er á nýtt ár kominn aftur. 3 Þú einn varst traust og unun mín, mín eina hlíf var gæskan þín, ég gekk í geymslu þinni og heill og ró þín hönd mér bjó og huggun sálu minni. 4 Á nýju ári nýja þrá þín nýja líkn mér kveiki hjá að þjóna þér og hlýða, mitt kall og stétt að rækja rétt og reyna' ef vilt hið stríða. 5 Þá æviárum hallar hér þitt hjálpráð, faðir, veittu mér og ending allra nauða. Gef orðið þitt sé athvarf mitt og yndi' í lífi' og dauða. 6 Ó, allt það gott sem gafst mér þú þín geymi máttug höndin nú og blessi mig og mína. Þitt auglit blítt um árið nýtt oss öllum láttu skína.


T Sigurður Jónsson í Presthólum – Sb. 1671
L 15. öld – Zürich um 1552 – Sb. 1589
In dich hab ich gehoffet, Herr

Eldra númer 103
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction