Sálmabók

758. Nýja skrúðið nýfærð í

Trúarlífið - Vor og sumar

hymn notes
1 Nýja skrúðið nýfærð í náttúran sig gleður, skepnan öll sem orðin ný upp rís Jesú meður. Dauða vaknað allt er af, allt um loft og jörð og haf sannar sigur lífsins. 2 Brosir dagur, brosir nótt, blíða' og ylur vaka, skepnur fyllast fjöri' og þrótt, fuglar glaðir kvaka, döggin blikar, grundin grær, gjörvallt segir fjær og nær: Sjáið sigur lífsins. 3 Lífið hefur dauðann deytt, döpru manna geði aftur nú er indæl veitt Edens horfna gleði. Kristur galt hið krafða verð, kerúb hefur slíðrað sverð, greidd er leið til lífsins.


T Adam frá St. Victor 12. öld – Nikolaj F.S. Grundtvig 1837, 1845 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
Mundi renovatio / (Verdens igenfødelse)
L Johan P.E. Hartmann 1861 – BÞ 1903
Blomstre som en rosengård

Eldra númer 476
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction