Sálmabók

73a. Yfir hverri eykt á jörðu

Kirkjuár - Áramót

hymn notes
1 Yfir hverri eykt á jörðu englar Drottins halda vörð. Dúnmjúkt lífsins dægur falla dropum lík í rakan svörð. Árin seytla eins og lindir, aldir hníga líkt og fljót, eilífðin sem úthaf bíður, allra tíma stefnumót. 2 Þytur tímans þungu vatna þýtur enn, hið nýja ár. Stara niður stjörnu augu, stundin verður heit og sár. Allir dagar ævi minnar eru, Drottinn, sekt á mér. Sjúk og döpur sál mín grætur, syndum hlaðin, eftir þér. 3 Stara niður stjörnu augu, stara inn í hjarta mitt. Bið ég hljóður bænir mínar, blessa, Drottinn, nafnið þitt. Lát mig alla lífsins daga lúta, Drottinn, einum þér. Nafni þinnar dýrðar deyja, Drottinn himna, veit þú mér. 4 Yfir lífsins svörtu sanda sendu náðar brosið þitt. Eftir villu, brot og blekking blessa, Drottinn, hjarta mitt. Drottinn, vægðu, dæm þú eigi, Drottinn Guð, ég trúi' á þig. Jesú, þínum jólum fagna, Jesú Kristur, heyr þú mig.


T Stefán frá Hvítadal, 1931– Sb. 1972
L Gunnar Reynir Sveinsson, 1982

Eldra númer 107
Eldra númer útskýring T

Uppáhalds sálmar

Under Construction