Sálmabók

730. Kærleikur Guðs

Trúarlífið - Trú og traust

hymn notes
1 Kærleikur Guðs er eins og úthafsströndin, andvari' í grasi, friðsæl heimalönd. En þér er frjálst að flýja yfir löndin ef forðast viltu Drottins líknarhönd. Kærleikur Guðs er eins og úthafsströndin, andvari' í grasi, friðsæl heimalönd. 2 Vér glímum öll við lífsins stríðu strauma, vor lausn í eigin frelsi bundin er: Þar finnst ei tóm það rúmar dáð og drauma; hin dýra jörð sem mestan ávöxt ber. Kærleikur Guðs er eins og úthafsströndin, andvari' í grasi, friðsæl heimalönd. 3 Samt er sem fólkið enn þá hlaða hljóti í heimsku sinni múr í kringum sig. Það fangahús er byggt af hræðslugrjóti sem hindrar oss að lifa fyrir þig. Kærleikur Guðs er eins og úthafsströndin, andvari' í grasi, friðsæl heimalönd. 4 Ó, Drottinn minn, oss dæm í mildi þinni að dómur vor sé fyrirgefning þín. Hið sanna frelsi búið sálu minni er sonur Guðs sem bætir meinin mín. Kærleikur Guðs er eins og úthafsströndin, andvari' í grasi, friðsæl heimalönd.


T Anders Frostenson 1968 – Kristján Valur Ingólfsson 1975, 2017
Guds kärlek är som stranden
L Lars Åke Lundberg 1968
Guds kärlek är som stranden

Uppáhalds sálmar

Under Construction