Sálmabók

728. Ljósfaðir

Trúarlífið - Trú og traust

hymn notes
1 Ljósfaðir, viltu lýsa mér langan dag, myrka nótt, vekja minn hug til varnar skjótt ef vélráðin á mér tökum ná, beina mér brautina á. 2 Ljósfaðir, viltu vera mér vinarhönd, lífsins blóm, opna míns hjarta helgidóm og hamingjudaga minna á, beina mér blekkingum frá. 3 Ljósfaðir, viltu vernda mig, veita mér öruggt skjól, hefja til vegs þitt höfuðból svo heimurinn allur sjái það, beina mér bjargráðum að. 4 Ljósfaðir, viltu leiða mig, ljá mér þinn sterka arm, svala þorsta' og sefa harm, í sannleika skapa undur ný, beina mér birtuna í.


T Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson 2009 – Vb. 2013
L Sigurður Flosason 2009 – Vb. 2013

Eldra númer 846
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction