Sálmabók

723. Ég leit eina lilju í holti

Trúarlífið - Trú og traust

hymn notes
1 Ég leit eina lilju í holti, hún lifði hjá steinum á mel, svo blíð og svo björt og svo auðmjúk en blettinn sinn prýddi hún vel. Ég veit það er úti um engin mörg önnur sem glitrar og skín. Ég þræti’ ekki’ um litinn né ljómann, en liljan í holtinu’ er mín. :,: Þessi lilja’ er mín lifandi trú. :,: Hún er ljós mitt og von mín og yndi, þessi lilja’ er mín lifandi trú. 2 Og þó að í vindinum visni á völlum og engjum hvert blóm og haustvindar blási um heiðar með hörðum og deyðandi róm og veturinn komi með kulda og klaka og hríðar og snjó, hún lifir í hug mér sú lilja og líf hennar veitir mér fró. Þessi lilja’ er mín ...


T Enskur höf. ók. – Þorsteinn Gíslason, 1933 – Vb. 2013
L Höf. ók. – Vb. 2013

Eldra númer 917
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction