Sálmabók

721. Þú, Guð, sem veist og gefur allt

Trúarlífið - Trú og traust

hymn notes
1 Þú, Guð, sem veist og gefur allt, mitt geð er hvikult, blint og valt og hugur snauður, hjartað kalt, þó vil ég vera þinn. Og þú ert ríkur, þitt er allt, og þú ert faðir minn. 2 Þú þekkir allan heimsins harm, hvert hjarta grætur þér við barm, þú vegur á þinn ástararm hvert afbrot manns og böl. Við krossins djúpa, hreina harm þú helgar alla kvöl. 3 Þú átt mitt líf, þú leystir mig, þú lést mig blindan finna þig af þeirri náð er söm við sig hvern dag mig dæmdan ber. Þú, Kristur, bróðir, blessar mig og biður fyrir mér. 4 Minn Guð, sem varst og ert mér allt og alla blessar þúsundfalt, þú skilur hjartað, veilt og valt og mannsins mörgu sár. Þú ber þinn kross og bætir allt og brosir gegnum tár.


T Sigurbjörn Einarsson – Sb. 1972
L Þorkell Sigurbjörnsson 1985 – Vb. 1991

Eldra númer 356
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction